Thursday, March 08, 2007

Ó mæ god!

Það er gjörsamlega frábær mæting. Fólk virðist vera í gríðarstemningu fyrir árshátíðinni og gaman verður að hitta alla í galamúnderingunni. Við verðum rúmlega 340 manns í allt og vinir okkar utan af landi mæta sprellfjörugir. Þröngt mega sáttir sitja...standa, það þurfa nefnilega sumir að standa, það verður selt í stúku og stæði. Nei, ég er að sjálfsögðu að grínast. Það verður nóg pláss fyrir alla.

Gjaldkeri félagsins hefur af sinni einstöku natni náð að koma öllum fyrir milli súlna í þessum sal í Bændahöllinni og við prísum okkur sæl að klámráðstefnunni hafi verið synjað aðgengi á hótelið. Það hefði ekki verið ábætandi að hafa fólk hangandi á súlunum, í latexbúningum, í lostafullum dansi, yfir dádýrasteikinni.

Nú er ekkert eftir nema að koma sér á staðinn á laugardaginn, setjast niður, brosa og hafa gaman.

En svo ekki sé hætta á að eitthvað gleymist þá er hér tékklistinn síðan í fyrra:



  • Aðgöngumiðinn, nauðsynlegur til að komast inn.

  • Aðgöngumiðinn, hann er líka happadrættismiði, og vinningarnir slá allt út í ár. Guð sé oss næstur.

  • Varasalvi, ef það hefur verið frost og maður er með varaþurrk þá er hætt við skemmdum þegar maður brosir.

  • Monningar, við erum víst ekki í reikning á barnum.

  • Spænsk frasabók, hver getur annars lesið þennan vínlista?!

  • Nál og tvinni, hver kannast ekki við lítið slys ef maður teygir of mikið úr sér í stuðinu á dansgólfinu!

  • Hárstrípur, hvítar tennur og brúnkukrem, hver veit nema að ljósmyndarar Séð og Heyrt verði á staðnum.

  • Góð bók, ef veislustjórinn er þvoglumæltur og skemmtiatriðin leiðinleg er gott að grípa í bók.

Góða skemmtun!

Friday, March 02, 2007

Við erum á leið á árshátíð..dúddírúddírú!

Hvort að þeir Sævar, Birgir og Kristján veislustjóri séu þarna að æfa skemmtiatriði fyrir Árshátíð Pennans á laugardaginn næsta, verður að liggja milli hluta. En eitt er víst að þeir eru þegar orðnir mjög spenntir og ætla að vera í þrumustuði.
Akureyringar ætla að leggja af stað yfir heiðar á föstudaginn með rútu..eða varð það langferðabíll?! Þar fer ansi hress hópur. Einnig munu Ísfirðingar koma á föstudag, fara í leikhús og skoða Eymundsson búðir og annað.
Mikið verður þetta gaman!

Thursday, March 01, 2007

Ertu nokkuð að gleyma að skrá þig á árshátíðina!


Nú eru aðeins tíu dagar í Árshátíð Pennans 2007 og skráningu fer að ljúka.

Þú ert ekki að klikka á þessu, er það!


(myndin hér við hliðina er máluð með Windsor & Newton olíulitum frá Pennanum)

Tuesday, February 20, 2007

Við fórum á Abbababb á laugardaginn!

Þarna er Hr.Rokk og Rokkarnir í góðum gír. Flestir voru á því að sýningin væri geysiskemmtileg fyrir alla aldurshópa. Hún var fyndin og vakti þó einkum stríðið milli dískóbolta og pönkara kátínu. Við mælum með Abbababb!

Karókíkeppnin var gjörsamlega frábær!

Thursday, January 18, 2007

Með Pennann á lofti!

Hér er komin almenn upplýsingasíða fyrir starfsmenn Pennans. Þessi síða verður sprelllifandi og skemmtileg en fyrst og fremst gagnvirk með eindæmum.