Thursday, March 08, 2007

Ó mæ god!

Það er gjörsamlega frábær mæting. Fólk virðist vera í gríðarstemningu fyrir árshátíðinni og gaman verður að hitta alla í galamúnderingunni. Við verðum rúmlega 340 manns í allt og vinir okkar utan af landi mæta sprellfjörugir. Þröngt mega sáttir sitja...standa, það þurfa nefnilega sumir að standa, það verður selt í stúku og stæði. Nei, ég er að sjálfsögðu að grínast. Það verður nóg pláss fyrir alla.

Gjaldkeri félagsins hefur af sinni einstöku natni náð að koma öllum fyrir milli súlna í þessum sal í Bændahöllinni og við prísum okkur sæl að klámráðstefnunni hafi verið synjað aðgengi á hótelið. Það hefði ekki verið ábætandi að hafa fólk hangandi á súlunum, í latexbúningum, í lostafullum dansi, yfir dádýrasteikinni.

Nú er ekkert eftir nema að koma sér á staðinn á laugardaginn, setjast niður, brosa og hafa gaman.

En svo ekki sé hætta á að eitthvað gleymist þá er hér tékklistinn síðan í fyrra:



  • Aðgöngumiðinn, nauðsynlegur til að komast inn.

  • Aðgöngumiðinn, hann er líka happadrættismiði, og vinningarnir slá allt út í ár. Guð sé oss næstur.

  • Varasalvi, ef það hefur verið frost og maður er með varaþurrk þá er hætt við skemmdum þegar maður brosir.

  • Monningar, við erum víst ekki í reikning á barnum.

  • Spænsk frasabók, hver getur annars lesið þennan vínlista?!

  • Nál og tvinni, hver kannast ekki við lítið slys ef maður teygir of mikið úr sér í stuðinu á dansgólfinu!

  • Hárstrípur, hvítar tennur og brúnkukrem, hver veit nema að ljósmyndarar Séð og Heyrt verði á staðnum.

  • Góð bók, ef veislustjórinn er þvoglumæltur og skemmtiatriðin leiðinleg er gott að grípa í bók.

Góða skemmtun!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home